Unga fólkið: 12 vikna söngnámskeið fyrir 5-7 ára

Þetta er skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir 5-7 ára þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einnig er mikil áhersla lögð á að vinna með að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar og skapandi leiki.

Næsta námskeið hefst 18. september 2023

kr.37.800

Þetta er skemmtilegt og uppbyggjandi 12 vikna námskeið fyrir 5-7 ára þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina og að auka sjálfstraust einstaklingsins. Mikil áhersla verður lögð á að syngja í kór og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngva. Síðan fá þau afhent lag sem þau æfa og syngja með 3-4 öðrum úr hópnum. Í lok námskeiðsins verða síðan haldnir tónleikar þar sem foreldrar eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig þjálfast þau í leiklistarspuna og ýmsum skapandi leikjum sem hjálpa þeim að brjótast útúr skelinni og umfram allt að hafa gaman.

Það sem söngvarinn lærir er meðal annars: 

  • Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Túlkun, tjáning og framkoma
  • Texta skilningur
  • Að syngja saman í kór
  • Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk t.d. öndunaræfingar
  • Að syngja í míkrafón

Praktísk atriði: 

  • Hvenær: Nánar auglýst síðar
  • Hvar: Víkurhvarf 1
  • Lengd námskeiðs: 12 vikur
  • Verð: 42.000 (10% snemmskráningar afsláttur gildir til 8.8.2023)
  • Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
  • Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró. Einnig er hægt að skipta gjaldinu í 2 greiðslur með kröfum í heimabanka. Hafið samband á vocalist@vocalist.is ef áhugi er á að nýta sér það.
  • Kennari: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
  • Frístundarstyrkir: Hægt er að nýta frístundarstyrki hjá öllum bæjarfélögum á Stór Höfuðborgarsvæðinu. Sendið póst á vocalist@vocalist.is ef þið viljið nýta hann. Skráning þarf þá að fara fram í gegnum Sportabler.
  • Hámarksfjöldi í hóp: 16
  • Aldurstakmark: 5-7 ára

NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 18. SEPTEMBER 2023

 

 

Related Products