SKILMÁLAR VOCALIST

Ef viðskiptavinur kaupir einkatíma, námskeið eða kór áskrift hjá Vocalist samþykir hann eftirfarandi skilmála.

Skólagjöld

  • Staðfestingargjald er 20% af heildarverði og ef afbókun berst áður en námskeið hefst er mismunurinn endurgreiddur.

  • Skólagjöld fást ekki endurgreidd eftir að námskeið eða einkatímar hefjast. Ef þátttakandi hættir á námskeiði er hann búinn að skuldbinda sig til að greiða fullt gjald. Þetta á líka við um kórastarf.

  • Í kórastarfi geta nýir meðlimir komið á eina prufu æfingu í september, án endurgjalds.

  • Vocalist áskilur sér rétt til þess að breyta skólagjöldunum á milli anna.

  • Einkatíma þarf að nýta á þeirri önn sem þeir eru keyptir, eftir það renna þeir út.

Afbókun

  • Ef einkatími er afbókaður með minna en 24 klst. fyrirvara skal greitt fyrir hann að fullu og kennara er ekki skylt að bæta upp tímann.

  • Nemandi skal tilkynna forföll um leið og þau koma upp.

  • Ekki er hægt að bæta upp hóptíma sem nemandi missir af.

  • Ef kennari forfallast er honum skylt að bæta upp tímann.

Systkinaafsláttur

  • • Í þeim tilfellum þar sem systkini undir 18 ára aldri stunda nám hjá Vocalist er veittur 20% afsláttur fyrir annað systkin. (Gildir ekki með tilboðum)

Námskeið/Kórastarf

  • Vocalist áskilur sér rétt til að hagræða auglýstri dagskrá á námskeiðum.

  • Kórastarf skal vera í það minnsta 12 æfingar á haustönn og 15 æfingar á vorönn.

Trúnaður

  • Starfsfólk Vocalist heitir fullum trúnaði á persónulegum upplýsingum sem koma fram í einkatímum eða á námskeiðum.

Myndataka

  • Vocalist áskilur sér rétt til að taka myndir og myndbönd af viðskiptavinum í húsum Vocalist og á viðburðum tengdum starfseminni til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á söngskólanum Vocalist. Ef iðkendur eða forráðamenn ungmenna undir 18 ára fara fram á að ekki séu teknar myndir í slíku skyni, skal láta Vocalist vita af því með skriflegum hætti.