5 vikna námskeið í Complete Vocal Technique, 16. maí – 13. júní 2024

Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 5 vikur og byggist upp á hóptímum einu sinni í viku.

NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 16. MAÍ 2024

kr.54.900

Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 5 vikur og byggist upp á hóptímum einu sinni í viku.

Í fyrstu tveimur tímunum er farið ítarlega í alla helstu grunnþætti CVT með fyrirlestrum og æfingum og síðan vinnur hver og einn í tækni og túlkun í gegnum sín lög með kennara. Hópkennsla hefur gefið mjög góðan árangur því þá eru allir að læra af hinum í leiðinni og einnig þjálfa sig í að syngja fyrir framan aðra. Síðan myndast oft góð stemmning og samkennd í hópnum og fær einstaklingurinn mikla hvatningu frá hinum þátttakendunum.

Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna því söngvaranum er mætt þar sem hann er staddur hverju sinni. CVT er orðin mjög útbreidd tækni um alla Evrópu og hentar fyrir alla söngstíla, alveg frá óperusöng til þungarokks.

Það sem söngvarinn lærir er meðal annars: 

  • Góð undirstaða í Complete Vocal Technique (CVT)
  • Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
  • Öndun og stuðning
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Ráð við ýmsum raddvandamálum svo sem hæsi, þreytu, spennu osfrv.
  • Túlkun, tjáning og framkoma
  • Aukið sjálfsöryggi og hvernig við vinnum á sviðsskrekk

Ef þátttakandi vill halda áfram að þá er 5 vikna námskeiðið nægur grunnur fyrir skráningu á 12 vikna framhaldsnámskeið að hausti.

Praktísk atriði: 

  • Hvenær: 16. maí – 13. júní á fimmtudögum kl. 18:00-20:00/21:00 (fer eftir fjölda)
  • Hvar: Víkurhvarf 1
  • Verð: 54.900 kr.
  • Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást námskeiðsgjöld ekki endurgreidd.
  • Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró og er þar hægt að skipta greiðslum.
  • Kennari: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
  • Styrkir: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk
  • Hámarksfjöldi í hóp: 9 manns
  • Aldurstakmark: 16 ára og eldri

NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 16. MAÍ 2024.

 

Related Products