SKILMÁLAR VOCALIST
Ef viðskiptavinur kaupir einkatíma, námskeið eða kór áskrift hjá Vocalist samþykir hann eftirfarandi skilmála.
Skólagjöld
- Staðfestingargjald greiðist við skráningu og er óafturkræft
- Skólagjöld fást ekki endurgreidd. Ef þátttakandi hættir á námskeiði er hann búinn að skuldbinda sig til að greiða fullt gjald. Þetta á líka við um kórastarf.
- Skólagjöld fyrir 1 og 3 einkatíma skulu staðgreidd við skráningu. Ef keyptir eru 5 tímar er hægt að skipta í 2 greiðslur. Ef keyptir eru 10 eða 12 tímar er hægt að skipta í 3 greiðslur eftir að staðfestingargjald hefur verið greitt. Kóráskrift er hægt að skipta í 9 greiðslur.
- Vocalist áskilur sér rétt til þess að breyta skólagjöldunum á milli anna.
- Einkatíma þarf að nýta áður en hverri önn lýkur, eftir það renna þeir út.
Afbókun
- Ef einkatími er afbókaður með minna en 24 klst. fyrirvara skal greitt fyrir hann að fullu og kennara er ekki skylt að bæta upp tímann.
- Nemandi skal tilkynna forföll um leið og þau koma upp
- Ekki er hægt að bæta upp hóptíma sem nemandi missir af.
- Ef kennari forfallast er honum skylt að bæta upp tímann.
Systkinaafsláttur
- Í þeim tilfellum þar sem systkini undir 18 ára aldri stunda nám hjá Vocalist er veittur 20% afsláttur fyrir annað systkin. (Gildir ekki með tilboðum)
Námskeið/Kórastarf
- Vocalist áskilur sér rétt til að hagræða auglýstri dagskrá á námskeiðum.
- Kórastarf skal vera í það minnsta 12 æfingar á haustönn og 14 æfingar á vorönn.
- Í kórastarfi geta nýir meðlimir komið á eina prufu æfingu í september án endurgjalds.
Trúnaður
- Starfsfólk Vocalist heitir fullum trúnaði á persónulegum upplýsingum sem koma fram í einkatímum eða á námskeiðum.
Myndataka
- Vocalist áskilur sér rétt til að taka myndir og myndbönd af viðskiptavinum í húsum Vocalist og á viðburðum tengdum starfseminni til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á söngskólanum. Ef iðkendur eða forráðamenn ungmenna undir 18 ára fara fram á að ekki séu teknar myndir í slíku skyni, skal láta Vocalist vita af því með skriflegum hætti.