Þrír Einkatímar

Einkatímar henta fyrir alla þá sem vilja tileinka sér góða raddbeitingu og kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar. Söngvarar geta verið með fastan tíma í hverri viku eða ráðið því hversu langt líður á milli tímanna.

kr.42.000

Einkatímar henta fyrir alla þá sem vilja tileinka sér góða raddbeitingu og kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar. Einkatímar henta bæði fyrir byrjendur og lengra komna því tíminn er sniðinn að þörfum hvers og eins. Kenndir eru allir söngstílar, allt frá óperu til þungarokks. Tímarnir henta einnig þeim sem glíma við einhver raddvandamál eins og hæsi, raddþreytu, spennu osfrv. Söngvarar geta verið með fastan tíma í hverri viku eða ráðið því hversu langt líður á milli tímanna.

Það getur verið mjög mismunandi hvað söngvarar eru að vinna með í einkatímum, en það sem gæti verið unnið með eru t.d. eftirfarandi atriði:

  • Kynnast Complete Vocal Technique
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Öndun og stuðningur
  • Að kynnast eigin rödd betur
  • Aukið öryggi
  • Túlkun
  • Míkrafónatækni
  • Raddspuni
  • Effektar
  • Lausnir við ýmsum raddvandamálum t.d. hæsi, raddþreyta eða spenna
  • Vinna með talröddina

KYNNINGARFUNDUR: Þeir sem hafa ekki kynnt sér Complete Vocal Technique áður þurfa að byrja á sérstökum kynningarfundi þar sem grunndvallar atriði tækninnar verða kynnt. Söngvarinn getur síðan haldið áfram eftir það í einkatímum og byrjað að vinna með tæknina í sinni rödd. Rukkað verður fyrir kynningarfundinn eins og um einn einkatíma væri að ræða. Kynningarfundirnir verða tvær klukkustundir og haldnir reglulega eða að minnstakosti einu sinni í mánuði. (oftar ef aðsókn er mikil).

Praktískar upplýsingar:

  • Lengd tíma: 45 mínútur
  • Lágmarksaldur: 16 ára
  • Verð: 42.000
  • Hvar: Víkurhvarf 1, Síðumúli 8, Bragagata 26
  • Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró raðgreiðslum
  • Kennarar: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Bjartmar Þórðarsson
  • Styrkir: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk.
  • Ath. Tímana þarf að nýta áður en önninni lýkur, eftir það renna þeir út.
  • Ath. Ef keyptir eru 3 eða 5 einkatímar er ekki hægt að lofa fleiri einkatímum á sömu önn.

KENNSLA Á VORÖNN HEFST 22. JANÚAR 2024 – SKRÁNING ER HAFIN

Related Products