Skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir 9-12 ára krakka þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einnig er mikil áhersla lögð á að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar, skapandi leiki og jóga. Hver og einn velur sér 1 lag til að vinna með á námskeiðnu og síðasti tíminn er síðan “opin æfing” þar sem aðstandendur eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig þjálfast börnin í að syngja saman í kór og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngva og tveggja radda útsetningar.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Túlkun, tjáning og framkoma
- Textaskilningur
- Syngja saman í kór
- Að syngja í röddum
- Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk t.d. öndunaræfingar
- Leiklistarspuna
- Einfaldar jógaæfingar
- Að syngja í míkrafón
Praktísk atriði:
- Hvenær: HÓPUR 1: 12. – 16. júní kl. 13:00 – 16:00. HÓPUR 2: 14. – 18. ágúst kl. 13:00-16:00
- Hvar: Víkurhvarf 1, 203 Kópavogi
- Lengd námskeiðs: 15 klukkustundir
- Verð: 26.900
- Kennarar: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir og María Dalberg. Hér má sjá upplýsingar um þær: https://www.vocalist.is/starfsfolk
- Hámarksfjöldi í hóp: 14
- Aldurstakmark: 9-12 ára
Vinsamlega takið fram á umsókninni í athugasemd í hvaða hóp þú vilt skrá þitt barn.