Söngur og sjálfstyrking fyrir 9-12 ára

Þetta er skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir 9-12 ára þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einnig er mikil áhersla lögð á að vinna með að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar og skapandi leiki.

Næsta námskeið hefst 23. janúar 2023

kr.54.900

Þetta er skemmtilegt og uppbyggjandi 12 vikna námskeið fyrir 9-12 ára þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einnig er mikil áhersla lögð á að vinna með að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar og skapandi leiki. Hver og einn velur sér 2 lög til að vinna með á námskeiðnu og síðasti tíminn er síðan “opin æfing” þar sem foreldrar eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig þjálfast börnin í að syngja saman í kór og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngvar og tveggja radda útsetningar. Við vinnum síðan mikið með gróskuhugarfar barnanna með æfingum því tengdu.

Það sem söngvarinn lærir er meðal annars: 

  • Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Túlkun, tjáning og framkoma
  • Textaskilningur
  • Syngja saman í kór
  • Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk t.d. öndunaræfingar
  • Gróskuhugarfar
  • Að syngja í míkrafón
  • Framkoma

Praktísk atriði: 

  • Hvenær: Mánudögum kl. 16:40-17:40
  • Hvar: Síðumúli 8
  • Lengd námskeiðs: 12 vikur
  • Verð: 54.900 (10% snemmskráningar afsláttur gildir til 31.12.2022)
  • Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
  • Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró. Einnig er hægt að skipta gjaldinu með 3 greiðslum með kröfum í heimabanka. Hafið samband á vocalist@vocalist.is ef áhugi er á að nýta sér það.
  • Kennari: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
  • Frístundarstyrkir: Sendið póst á vocalist@vocalist.is ef þið viljið nýta hann. Skráning þarf þá að fara fram í gegnum Sportabler.
  • Hámarksfjöldi í hóp: 8-10
  • Aldurstakmark: 9-12 ára

Næsta námskeið hefst 23. janúar 2023

 

 

Related Products