Kvennakór Vocalist – Vorönn (jan-maí)

Kvennakór Vocalist hóf starfsemi sína haustið 2015 og hefur fjöldi kvenna verið á milli 15-30. Þetta er hress og skemmtilegur kór þar sem áherslan er lögð á létta tónlist svo sem dægurlög, popp, jazz og söngleikjatónlist.

kr.48.000

Kvennakór Vocalist hóf starfsemi sína haustið 2015 og hefur fjöldi kvenna verið á milli 15-30. Þetta er hress og skemmtilegur kór þar sem áherslan er lögð á létta tónlist svo sem dægurlög, popp, jazz og söngleikjatónlist.

Æfingarnar eru mjög skemmtilegar, gerðar eru skemmtilegar upphitunaræfingar fyrir líkama og rödd og síðan þjálfum við samhljóminn í hópnum og lærum raddirnar okkar. Kórstjórinn spilar inn raddirnar og deilir með kórkonum sem geta svo æft sig heima. Á vorönninni er vaninn að fara í æfingarbúðir úti á landi eina helgi og síðan eru haldnir tónleikar í apríl/maí. Einnig syngur kórinn 2x í messu í Laugarneskirkju á hverri önn.

Í kórastarfi eflist þú meðal annars í að:

  • Syngja í hóp og finna samhljóm
  • Auka hamingjuhormónin og minnkar streytuhormónin
  • Heilbrigða raddbeitingu
  • Þjálfa tóneyrað
  • Þjálfa minnið og læra texta
  • Koma fram á viðburðum og tónleikum
  • Frábæran félagsskap og vináttu

Praktískar upplýsingar:

  • Hvenær: Æfingar eru á þriðjudögum kl. 18:15-20:15
  • Hvar: Í Safnaðarheimili Laugarneskirkju
  • Aldurstakmark: 20-65 ára
  • Kórstjóri: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
  • Raddprufa: Hafið samband á vocalist@vocalist.is til að skrá ykkur í raddprufu
  • Prufuæfing: Nýir meðlimir eru velkomnir á eina prufuæfingu án endurgjalds. (eftir að hafa staðist raddprufu)
  • Styrkur: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk.

Related Products