Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 6 vikur og byggist upp á hóptímum einu sinni í viku.
Í fyrstu tveimur tímunum er farið ítarlega í alla helstu grunnþætti CVT með fyrirlestrum og æfingum og síðan vinnur hver og einn í tækni og túlkun í gegnum sín lög með kennara. Hópkennsla hefur gefið mjög góðan árangur því þá eru allir að læra af hinum í leiðinni og einnig þjálfa sig í að syngja fyrir framan aðra. Síðan myndast oft góð stemmning og samkennd í hópnum og fær einstaklingurinn mikla hvatningu frá hinum þátttakendunum.
Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna því söngvaranum er mætt þar sem hann er staddur í söngnum. CVT er mjög góð tækni sem hentar fyrir alla söngstíla, alveg frá óperusöng til þungarokks.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Góð undirstaða í Complete Vocal Technique (CVT)
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Öndun og stuðning
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Ráð við ýmsum raddvandamálum svo sem hæsi, þreytu, spennu osfrv.
- Túlkun, tjáning og framkoma
- Aukið sjálfsöryggi og hvernig við vinnum á sviðsskrekk
Praktísk atriði:
- Hvenær: Þriðjudagar kl. 9:30-11:30
- Hvar: Síðumúli 8
- Verð: 54.900 (10% snemmskráningar afsláttur gildir til 31.12.2022)
- Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
- Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró og er þar hægt að skipta greiðslum.
- Kennari: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
- Styrkir: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk
- Hámarksfjöldi í hóp: 8 manns
- Aldurstakmark: 16 ára og eldri
Næsta námskeið hefst 24. janúar 2023