Fullorðnir: 12 vikna grunnnámskeið í Complete Vocal Technique

Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 12 vikur og byggist að mestu upp á hóptímum einu sinni í viku, einum einkatíma og síðan verða haldnir tónleikar í lok námskeiðsins.

Næsta námskeið hefst 25. janúar 2024 = FULLBÓKAÐ

BYRJAÐ ER AÐ SKRÁ Á BIÐLISTA FYRIR NÆSTA NÁMSKEIÐ. VINSAMLEGA SENDU TÖLVUPÓST Á VOCALIST@VOCALIST.IS TIL SKRÁ ÞIG Á HANN. 

 

 

kr.139.900

Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 12 vikur og byggist upp á hóptímum einu sinni í viku, upptöku á einu demo lagi í stúdíó (valkvætt og greitt aukalega) og síðan verða haldnir tónleikar í lok námskeiðsins.

Í fyrstu tveimur tímunum er farið ítarlega í alla helstu grunnþætti CVT með fyrirlestrum og æfingum og eftir það fer hver og einn að vinna tækni og túlkun í gegnum sín lög með kennara. Hópkennsla hefur gefið mjög góðan árangur því þá eru allir að læra af hinum í leiðinni og einnig þjálfa sig í að syngja fyrir framan aðra. Síðan myndast oft góð stemmning og samkennd í hópnum og fær einstaklingurinn mikla hvatningu frá hinum þátttakendunum.

Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna því söngvaranum er mætt þar sem hann er staddur í söngnum. CVT er mjög góð tækni sem hentar fyrir alla söngstíla, alveg frá óperusöng til þungarokks. Píanóleikari verður til staðar hluta námskeiðsins. Hámarksfjöldi í hóp er 9 og lágmarksaldur er 16 ára.

Það sem söngvarinn lærir er meðal annars: 

  • Góð undirstaða í Complete Vocal Technique (CVT)
  • Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
  • Öndun og stuðning
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Ráð við ýmsum raddvandamálum svo sem hæsi, þreytu, spennu osfrv.
  • Túlkun, tjáning og framkoma
  • Aukið sjálfsöryggi og hvernig við vinnum á sviðsskrekk
  • Að syngja í míkrafón
  • Leiðsögn í að taka upp lag í hljóðveri (valkvætt)
  • Framkoma á tónleikum

Praktísk atriði: 

  • Hvenær: Fimmtudagar kl. 18:15-21:15
  • Hvar: Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
  • Fullt verð: 139.900 (10% snemmaskráningar afsláttur gildir til 31.12.2023)
  • Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
  • Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró.
  • Kennarar: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarson
  • Styrkir: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk
  • Hámarksfjöldi í hóp: 9 manns
  • Aldurstakmark: 16 ára og eldri
  • Upptaka í stúdíói: Greiðist aukalega og kostar 15.000 kr. miðað við 1 klst.

NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 25. JANÚAR 2024 = FULLBÓKAÐ

BYRJAÐ ER AÐ SKRÁ Á BIÐLISTA FYRIR NÆSTA NÁMSKEIÐ. VINSAMLEGA SENDU TÖLVUPÓST Á VOCALIST@VOCALIST.IS TIL SKRÁ ÞIG Á HANN. 

 

Related Products