Checkout SKILMÁLAR

SKILMÁLAR VOCALIST

Ef viðskiptavinur kaupir einkatíma, námskeið eða kór áskrift hjá Vocalist samþykir hann eftirfarandi skilmála.

Skólagjöld

  • Staðfestingargjald greiðist við skráningu og er óafturkræft
  • Skólagjöld fást ekki endurgreidd. Ef þátttakandi hættir á námskeiði er hann búinn að skuldbinda sig til að greiða fullt gjald. Þetta á líka við um kórastarf.
  • Skólagjöld fyrir 1 og 3 einkatíma skulu staðgreidd við skráningu. Ef keyptir eru 5 tímar er hægt að skipta í 2 greiðslur. Ef keyptir eru 10 eða 12 tímar er hægt að skipta í 3 greiðslur eftir að staðfestingargjald hefur verið greitt. Kóráskrift er hægt að skipta í 9 greiðslur.
  • Vocalist áskilur sér rétt til þess að breyta skólagjöldunum á milli anna.
  • Einkatíma þarf að nýta áður en hverri önn lýkur, eftir það renna þeir út.

Afbókun

  • Ef einkatími er afbókaður með minna en 24 klst. fyrirvara skal greitt fyrir hann að fullu og kennara er ekki skylt að bæta upp tímann.
  • Nemandi skal tilkynna forföll um leið og þau koma upp
  • Ekki er hægt að bæta upp hóptíma sem nemandi missir af.
  • Ef kennari forfallast er honum skylt að bæta upp tímann.

Systkinaafsláttur

  • Í þeim tilfellum þar sem systkini undir 18 ára aldri stunda nám hjá Vocalist er veittur 20% afsláttur fyrir annað systkin. (Gildir ekki með tilboðum)

Námskeið/Kórastarf

  • Vocalist áskilur sér rétt til að hagræða auglýstri dagskrá á námskeiðum.
  • Kórastarf skal vera í það minnsta 12 æfingar á haustönn og 14 æfingar á vorönn.
  • Í kórastarfi geta nýir meðlimir komið á eina prufu æfingu í september án endurgjalds.

Trúnaður

  • Starfsfólk Vocalist heitir fullum trúnaði á persónulegum upplýsingum sem koma fram í einkatímum eða á námskeiðum.

Myndataka

  • Vocalist áskilur sér rétt til að taka myndir og myndbönd af viðskiptavinum í húsum Vocalist og á viðburðum tengdum starfseminni til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á söngskólanum. Ef iðkendur eða forráðamenn ungmenna undir 18 ára fara fram á að ekki séu teknar myndir í slíku skyni, skal láta Vocalist vita af því með skriflegum hætti.